Á metsölulista ...
Ég var að fletta dálitlu upp á amazon.co.uk og haldiði að ég hafi ekki rekist á Icelandic Food and Cookery í öðru sæti á metsölulista - ókei, það var í flokknum bækur, undirflokkur matreiðslubækur, undirflokkur þjóðleg og alþjóðleg matargerð, undirflokknum önnur Evrópulönd, undirflokknum Skandinavía - en samt. Annað sæti á lista hjá Amazon, það er nú ekki slæmt. (Og í 102.437 sæti á heildarlistanum, það er ágætis árangur líka.)