Lesið fyrir börn
Á laugardaginn var ég í MM á Laugaveginum; þangað kem ég oft í viku. Stóð þar og var að fletta matreiðslutímaritum. Fyrir aftan mig var heil stæða af bókinni. Inn kom ungur maður með tvo drengi með sér, annan mjög ungan en hinn 3-4 ára.
-Viltu skoða skemmtilega bók, sagði faðirinn við soninn, sem tók líklega í það. -Sjáðu þessa, hún er svo skemmtileg. Sjáðu hvað myndirnar eru sniðugar. Á ég að lesa hana fyrir þig?
Svo las hann þuluna um negrastrákana hátt og snjallt fyrir drenginn og fletti jafnóðum svo að hann gæti horft á negrastrákana drepast hvern af öðrum. -Var hún ekki skemmtileg?
-Jú, jú, sagði strákurinn.
Faðirinn var byrjaður á þulunni aftur áður en drengurinn sleppti seinna júinu.
Þá gekk ég út og hef ekki komið inn í MM síðan.
Og svo langar mig bara að benda á þessa færslu Kristjáns B., ef þið eruð ekki búin að sjá hana.