Í minningu
Mig langar í snöggsteikta Klausturbleikju með sítrónum og möndlum í kvöldmatinn.
Og með henni ætla ég að borða kúskús með arganolíu í minningu góðrar konu sem verður jarðsett á morgun og kenndi mér á sínum tíma að meta þá ágætu olíu.
Kveiki kannski á einu kerti líka þótt ég sé annars lítið fyrir kertaljós.