(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

11.3.07

Fallnir félagar ...

Ég var að leita að netfangi hjá gamalli samstarfskonu áðan og rakst þá inn á leitarvélina nn.is, sem ég hef aldrei notað en þarna stendur ,,nn.is finnur fólk og fyrirtæki". Allt í lagi með það nema á þessari síðu voru taldir upp starfsmenn Birtíngs útgáfufélags og ég vissi fyrir víst að þessi tiltekna kona hafði aldrei unnið hjá því, var hætt löngu fyrr en það kom til.

Þegar ég fór að skoða listann sá ég að þótt þetta ætti að heita listi yfir starfsmenn Birtíngs var þetta í raun og veru 4-5 ára gamall listi yfir starfsmenn Fróða heitins - mér sýndist á nöfnunum að listinn væri frá því seint á árinu 2002, sé að ég er talin starfsmaður Gestgjafans og Iðunnarfólkið flest horfið sjónum en söludeildin samt eftir ... Ég held að það séu um 115 nöfn á listanum. Af þeim eru líklega um 15 sem enn vinna hjá Birtíngi.

Ég held að slagorð nn.is ,,finnur fólk og fyrirtæki" standist ekki alveg. Ekki hvað fólkið varðar að minnsta kosti.

En listinn hjálpaði mér svosem að muna eftir mörgu góðu fólki sem ég hef unnið með.

|