Rassmolar og sniglastingir
Af hverju ætli bloggið mitt sé annars hætt að uppfærast á Rassmolunum? Ég hef ekki breytt neinu hjá mér en þarna er eins og hnetustingjafærslan sé síðasta færsla.
Vel á minnst: Ég uppgötvaði það á dögunum að það er alveg hugsanlegt að hnetustingirnir mínir séu bara alls ekki hnetustingir. Ég sá nefnilega næstum alveg eins pinna á Ebay og þar voru þeir kallaðir snail picks. Sniglastingir, það er bara ennþá meira kúl.