Buxur og strekkingar
Móðirin: -Ég ætti kannski að fá mér svona buxur.
Sonurinn (virðir fyrir sér myndina á skjánum): -Já. Það er þín ákvörðun. Ég ætla ekki að koma nálægt henni.
Annars var ég að átta mig á því að konan í þessari auglýsingu, sem Denni birtir líka, minnir ótrúlega mikið á frú Rynke-Strithår-Vortesen þegar Andrés Önd tók hana í meðferð á snyrtistofunni sinni. Kannski ætti ég annars að panta mér svona meðferð í tilefni af fimmtugsafmælinu.
Kannski.