Kaupum ekkert ... ehem ...
Ég hélt upp á ,,kaupum ekkert"-daginn með því að fara og kaupa mér sófasett og sjónvarpsstól. Sá ekkert syngjandi jólatré í Rúmfatalagernum í dag (skal reyndar játa að ég leitaði ekkert voðalega mikið) en við Sauðargæran vorum að hugsa um að kaupa stóran og feitan jólasvein á svalirnar. Létum þó ekki verða af því í þetta sinn.
Svo keypti ég folaldafillet sem við Sauðargæran erum að fara að elda á eftir. Og sitthvað fleira.
En hey, ég keypti allavega ekkert í gær. Ekki einu sinni brauð. Aftur á móti birtist rithöfundur á tröppunum og gaukaði að mér bók.