Vínarterta
Ég er að baka vínartertu. Alvöruekta (vestur)íslenska vínartertu, kardimommukryddaða með kanel- og negulkrydduðu sveskjumauki. Hrikalega góð.
En hún er að fara til Kanada í heilu lagi á morgun svo að það þýðir ekkert að koma í kaffi og vonast eftir sneið.
Bara svo það sé á hreinu ...