Laus úr prísundinni
Ég komst út á endanum með góðra manna hjálp (sonarins og tengdasonarins, sem voru þeir sem festu sófann í dyrunum in the first place). Dirk Gently lét ekki sjá sig.
Núna stendur sófinn upp á endann frammi á gangi og kemst hvorki lönd né strönd. Ég get þó troðið mér framhjá honum til að komast á klósettið. Eins gott.