(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

9.9.06

Servíettusafn

Það fer ekki á milli mála að ég er búin að búa hér nokkuð lengi.

Þegar ég var að taka til á efstu hillunni í búrinu áðan fann ég servíettusafn gagnlega barnsins. Það hefur áreiðanlega verið þar alveg óhreyft í rúm fimmtán ár, þar sem hún var fyrir löngu hætt allri servíettusöfnun þegar við fluttum hingað.

Gaman að vita hvað Boltastelpunni (sem er lítið gefin fyrir kvenlega iðju eins og servíettusöfnun) finnst um þessa fjársjóði móður sinnar. Ég þarf að sýna henni þetta þegar hún kemur á eftir.

|