Uppstokkun
Ég er búin að komast að því að það er mjög hentugt að nota síðasta árið í hverjum áratug ævinnar í að stokka upp í sjálfum sér eða umhverfi sínu og gera róttækar breytingar. Og þar sem ég er einmitt 49 ára núna er ég í svoleiðis fasa.
Það er dálítið skemmtilegt.
Svo verður bara að koma í ljós seinna hvort maður er að taka réttar ákvarðanir. Þær sem ég tók árið sem ég var 39 ára urðu allavega til góðs.
Kemur í ljós. Einhverntíma.