Í eldhúsinu með Chippendales
Einu sinni átti ég matreiðslubók með Chippendales. In the Kitchen With the Chippendales, minnir mig að hún hafi heitið. Uppskriftir eins og Shameless Tart, Oysters Rock-Yer-Fella og Creamy Wicked Willy. Ég gaf Gurrí hana í afmælisgjöf fyrir mörgum árum, annars mundi ég kannski birta uppskrift úr henni. Svona í tilefni af væntanlegri komu drengjanna.
Reyndar er ég að fara í afmælið hennar Gurríar bráðlega. Kannski ég fái að punkta niður eina uppskrift eða svo ...