(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

3.8.06

Mrs. Creosote

Ég var að lesa frásögn af rannsókn þar sem fram kom að því svengri sem karlmenn eru, þeim mun betur hugnast þeim þéttvaxnar konur.

Feitasta kona sem ég hef kynnst um dagana var nýgift manni sem var bara meðalgrannur; ég hitti hann reyndar ekki en sá myndir af honum. En ég man að hún talaði um að hann væri mikill matmaður. Kannski var hann einn af þeim sem brennir mjög miklu og þess vegna sísvangur.

Ég fór í all-you-can-eat sunnudagsbrunch með þessari konu á hóteli í Colorado Springs. Það var upplifun, get ég sagt ykkur. Var farið að minna óhugnanlega mikið á Monty Python, nema konan hélt öllu niðri. Og var töluvert kátari og málglaðari en Mr. Creosote.

En þegar hún fór að tala um að sig langaði að skreppa einu sinni enn að eftirréttaborðinu af því að hún var enn ekki búin að smakka einhverja af þessum sirka fimmtán eftirréttum sem þar voru ákvað ég að muna skyndilega eftir einhverju sem þurfti nauðsynlega að sinna uppi á hótelherbergi. Best að taka enga sénsa.

|