Jæja, þetta er nú allt á uppleið. Mér líður skár og ég er búin að koma mér fyrir undir teppi í sófahorninu með kaffibrúsa, súkkulaðirúsínur, tölvu, glæpareyfara, tímarit, þrjár fjarstýringar, tvo síma og fleiri nausynjahluti. Og Greta Garbo í sjónvarpinu. Á yngri árum.
Hefði reyndar gjarna viljað vera í vinnunni að taka á móti nýjum blaðamanni Gestgjafans, sem hóf störf í morgun. Þetta er álitlegasti piltur - já, við réðum ungan karlmann til starfa, höfðum enda fengið eindregin tilmæli frá starfssystrum okkar. Þessi er reyndar ekki á lausu eins og beðið var sérstaklega um ... En við hlökkum til að fá karlmannlegt sjónarhorn á hlutina.