Ég var að hugsa um að leggjast í rúmið og vera alminlega veik. En svo áttaði ég á mig að það er lítið varið í það þegar enginn er til að hjúkra manni.
Kannski kemur efnafræðistúdentinn samt við á eftir svo að ég geti sent hann út eftir Drekaborgara. Ágætis borgarar á Drekanum.
Svo er það bara dúnsængin og koníakið sem gilda. Hlýtur að lækna þetta fljótlega.
Ef ekki, þá má prófa Calvadosið.