Ég var að fá launaseðil frá fyrirtæki sem ég vann ákveðið aukaverkefni fyrir í fyrra. Upphæðin á seðlinum er allmiklu hærri en ég kannast við að hafa fengið greidda. Nú er spurningin: Er bókhaldið mitt í svona miklu fokki, hefur einhver slegið inn vitlausa tölu eða liggur einhvers staðar feitur tékki með nafninu mínu og bíður eftir mér?
Þarf að kanna þetta betur á morgun.