Ég held að ég sé að verða lasin. Má reyndar ekkert vera að því. Samt skárra núna en í síðustu viku eða næstu.
Svona er ég nú góður starfsmaður, haga meira að segja veikindum mínum eftir hagsmunum vinnuveitandans.
Þarf líklega að mynda eina fjóra þætti í næstu viku. Sennilega er best að ég fari að leita Gísla ljósmyndara uppi til að tryggja mér hann þegar ég þarf á að halda.
Eftirsóttur maður, Gísli.