Það eru yfir þrjátíu manns búnir að koma inn á bloggið mitt bara núna eftir kvöldmat í leit að Jónínu Ben. Bara af því að ég minntist rétt á hana í einni færslu í haust. Mikið verið að leita á netinu í kvöld, einhverja langar greinilega til að sjá þessa frægu tölvupósta ...
Við Jónína erum annars jafnöldrur (held að hún sé sex dögum yngri), báðar að norðan, vorum í tengslum við sömu trúarhreyfingu á unglingsárum og höfum svipaðan fatasmekk (græna undrið sem Jónína klæddist í Kastljósinu í haust var akkúrat minn stíll). En við höfum ekki sama smekk á karlmenn.