If you can't stand the heat, stay out of the kitchen ...
Það var mottóið í Gestgjafaeldhúsinu í morgun. Nýbúið að gera við miðstöðvarofninn, sem er búinn að vera bilaður í marga mánuði. Og ég að elda fimm rétti í einu, með báða ofnana og fjórar gashellur á fullu ...
Og svo þurfti ég náttúrlega að fara í peysu í morgun og var ekki í bol innan undir. Kunni ekki alveg við að standa á brjóstahaldaranum þarna yfir pottunum. Svona vinnufélaganna vegna. Þannig að mér var frekar heitt.