Sjúklingurinn var mun hressari en ég reiknaði með, sat og spilaði Mario Kart á leikjatölvuna sína og var hættur að æla blóði.
Bróðir hennar var mjög hissa á þessum tannlækni sem hafði skorið alveg helling í munninn á systur hans og tekið eina tönnina og saumað allt saman með svörtum spotta. Sjálfur var hann nefnilega hjá tannlækni fyrr í vikunni.
-En ég var sko hjá góðum tannlækni sem taldi bara tennurnar mínar, sagði hann.
Svo sagði hann mér að það væri forri og hann hefði fengið forramat á leikskólanum í dag, hann hefði verið vondur nema hangikjötið og kartöflurnar og platbrauðið. Bauðst svo til að kenna mér að syngja um forrann og söng Nú er frost á Fróni, fyrri tvö erindin, nánast algjörlega rétt. Skilur samt sennilega ekki nema þriðja hvert orð. Fyrir honum er þetta náttúrlega eins og kurrjóðaglyðra.