Sauðargæran sá upphafið á handboltaleiknum í sjónvarpinu áðan. Þar var náttúrlega leikinn íslenski þjóðsöngurinn og handboltadrengirnir stóðu þarna stífir og alvarlegir og voru sumir eitthvað að myndast við að syngja með. Drengurinn horfði á þetta smástund og spurði svo móður sína:
-Eru þetta dánir fótboltamenn?