Farin í leiðangur með gagnlega barninu að leita uppi stórt svínslæri í Þorláksmessuskinkuna. Spurning hvað það verður stórt í ár, ég lenti í töluverðum vandræðum með 13 kílóa lærið um árið og nú er stóra leirkerið mitt brotið.
Svo þarf ég líka að kaupa í kvöldmatinn, Sauðargæran ætlar að koma og gista og hann er búinn að panta kjúkling sem hann ætlar að elda.