Farin til London að slappa af í nokkra daga.
Einhverjum (karlkyns) vinnufélögum mínum fannst það nú ekki góð hugmynd, mér heyrðist á þeim að þeir teldu sig varla hafa lent í meiri sálarháska um dagana en þeim að vera staddir á Oxfordstræti á laugardegi í desember. En ég hef áður slakað á í London í desember með góðum árangri og ég reikna með að við mæðgurnar verðum annars staðar en á Oxfordstræti á morgun. Sitjum kannski einhversstaðar á kaffihúsi og gerum ekki neitt, förum kannski á Boroughs Market, Portobello Road eða Camden-markaðinn. Eða eitthvað allt annað.
Það vantar í okkur verslunargenið.
Ég tek samt tölvuna með og læt örugglega eitthvað til mín heyra.