Ég held að ég fái engin verðlaun í jólaskreytingakeppninni í ár. En eins og ég sagði við dómnefndina, sumir þurfa að vinna og standa sveittir í eldhúsinu á meðan aðrir geta dundað sér við að skreyta og dúlla.
Ég mátti ekki einu sinni vera að því að útbúa mútur handa dómnefndinni. Það svínvirkaði síðast.