Það er búið að selja mig. Ekki í fyrsta skipti, þetta kemst upp í vana. Síðast, þegar Iðunn var seld til Eddu, fylgdi ég sjálf reyndar ekki með í kaupunum, bara bækurnar mínar, en í þetta skipti var Fróði seldur með manni og mús.
Þetta er heldur ekki fyrsti fundurinn sem ég er á þar sem Oddamenn eru að kaupa eða yfirtaka. En síðast þegar það gerðist fylgdi ég ekki með heldur.
Mér líst annars hreint ekki illa á þetta. Sjáum til.