Ég er að fara norður á eftir og þar sem tölvan hjá gömlu hjónunum er í lamasessi verð ég sennilega ekki í netsambandi fyrr en á sunnudag.
Ég vildi gjarna að ég væri að fara norður í stórum og flottum jeppa, sæti þar í framsætinu eins og drottning með myndarlegan karlmann mér við hlið. En í staðinn sit ég í aftursætinu á milli barnabarnanna, sem örugglega rífast þvert yfir mig alla leiðina ...
Ojæja. Ég lifi það af.