Komin úr góða veðrinu í Skagafirði og á Siglufirði. Ég var á Króknum til að hitta gömlu hjónin og skoða nýju íbúðina þeirra - sem mér leist alveg hreint ljómandi vel á og gott að sjá hvað þau voru strax búin að koma sér vel fyrir og kunnu vel við sig - og fór svo til Siglufjarðar þar sem Boltastelpan var að keppa á fótboltamóti. Hún stóð sannarlega undir nafni, þar sem liðið hennar vann í sínum flokki og hún skoraði sex af þeim samtals ellefu mörkum sem þær skoruðu, þar á meðal eina markið í úrslitaleiknum. Svava frænka hennar var sömuleiðis í sigurliðinu í sínum flokki og það voru tvær ákaflega kátar og glaðar frænkur sem sátu saman í aftursætinu á leiðinni yfir Siglufjarðarskarðið í dag með verðlaunapeningana sína um hálsinn.
Ég eignaðist merkilega matreiðslubók fyrir norðan, fékk staðfestingu á því að matreiðsluáhugi minn nær mjög langt aftur í tímann, las bók sem mér fannst skemmtilegri en ég hafði eiginlega reiknað með, keypti hamborgaragröfu handa dóttursyninum - frá þessu öllu segi ég betur seinna - og rifjaði upp minningar úr fimmtugsafmæli afabróður míns árið 1964. Það var skemmtileg samkoma.
Ég er að fara aftur norður um næstu helgi í jarðarförina hans.