Aumingja efnafræðistúdentinn var að hringja.
Hann var að uppgötva að græna kortið hans er útrunnið.
Hann var að uppgötva að hann er ekki með krónu á sér.
Hann var að uppgötva að hann gleymdi húslyklunum heima hjá kærustunni.
Hann kemst ekki í vinnuna.
Hann kemst ekki inn heima hjá sér.
Kærastan er farin á Hornstrandir.
Hann er að koma til mömmu sinnar að gráta upp við öxlina á henni út af vonsku heimsins.