Jæja, nú er svo gott sem allt tilbúið, bakkelsið komið á borðið, maturinn á leiðinni þangað smátt og smátt, einhver tiltekt eftir (reyndar heilmikil tiltekt eftir en sumt verður nú bara látið eiga sig og öðru hent inn í skáp) - æ, og ég á víst eftir að pakka inn nokkrum jólagjöfum - en annars erum við mæðginin í góðum málum og vonumst eftir að sjá ykkur sem flest núna á eftir.
Og þið hin sem ekki komið:
GLEÐILEG JÓL