Við mæðginin hreiðrum um okkur hér hvort í sínum sófa. Sjónvarpið er opið og það eru einhverjir fjandans boltaleikir í gangi. Ég er ekki að horfa.
Efnafræðistúdentinn: Það er merkilegt að 30% af öllum leikmönnum í þýsku úrvalsdeildinni eru frá Brasilíu.
Ég: Já.
Efnafræðistúdentinn: Nei, það er merkilegt í ljósi þess að ...
Ég: Já, þetta er örugglega rétt hjá þér.
Efnafræðistúdentinn: I hate you, you know.
Ég: Nú, átti ég að mótmæla þér?
Efnafræðistúdentinn: Hrmpf.
Það er vandlifað.