Hmm, ég fékk slæmar og góðar fréttir.
Slæmu fréttirnar eru að vínkynningarnar sem ég minntist á áðan eru báðar á sama tíma.
Góðu fréttirnar eru að annarri fylgir tvíréttuð máltíð á Sommelier. Sem óneitanlega auðveldar mér að velja á milli.
Vesalings efnafræðistúdentinn þarf víst að láta sér nægja kalkúnaleifar annað kvöldið í röð. Búhú.