Ég var að lesa fyrirsagnir í einhverju dönsku blaðanna - BT held ég - og þær voru náttúrlega allar um trúlofun Friðriks og Maju (sem er reyndar orðin hálfgerð ekki-frétt). Nema svo sá ég lista yfir mest lesnu fréttirnar, sem byrjaði svona:
1. Frederik og Mary skal giftes
2. Grædende eks-kæreste efter dom: Tænk hvis han gør det igen
Úbbs, hvað hafði Frikki gert? Hann á nú töluvert af eks-kærustum.
En svo var þetta um það bil eina fréttin á forsíðunni sem ekki var um parið.