Meiri áráttan hjá veitingamönnum að þurfa endilega að koma öllu hráefninu að í nafninu á réttinum og gott ef ekki aðferðinni líka. Hér er ég til dæmis með uppskrift sem heitir ,,Engifersteiktar tígrisrækjur með blönduðu salati og taí-basil- og klettasalatsmauki". Ábyggilega mjög gott en ég hefði reynt að finna liprara nafn.