Ég rakst áðan á bók á bookfinder.com þar sem höfundarnir eru skráðir: ,,Eftir, Formali and Halldor Kiljan Laxness".
Mr. eða Ms. Eftir virðist annars vera nokkuð virkur höfundur, þarna er líka t.d. bók skráð á Eftir, Formali, & Stefansson, Eggert, og ýmsar fleiri. Hins vegar skil ég ekki alveg skráninguna á Doddi fyrir dómara (eða hvernig Doddi fyrir dómara hefur yfirleitt hafnað hjá amerískri fornbókasölu); höfundurinn er skráður ,,Blyton, Grid Eftir, Hersteinn Palsson Pyddi".