Boltastelpan var rétt áðan að lesa frásögnina af vatnsbyssuskotum efnafræðistúdentsins í gær. Svo tók hún vatnsbyssuna sína, skoðaði hana og sá að það var svolítið vatn í henni enn.
,,En það er ekki hægt að skjóta þegar er svona lítið vatn," sagði hún. Tók svo byssuna og beindi henni í átt að mér.
,,Sko bara, það kemur ekkert," sagði hún og tók í gikkinn.
Döh ...