Efnafræðistúdentinn stóð hér áðan með vatnsbyssu - vatnskanónu öllu heldur - sem frænka hans á, beindi henni að mér og gerði sig líklegan til að skjóta.
Ég bað hann lengstra orða að láta það eiga sig.
,,Það er ekkert vatn í henni," sagði hann og þrýsti á gikkinn.
Smáþögn.
,,Það er næstum ekkert vatn í henni," leiðrétti hann sig svo.