(function() { var b=window,e="jstiming",f="tick";(function(){function c(a){this.t={};this.tick=function(a,c,d){d=void 0!=d?d:(new Date).getTime();this.t[a]=[d,c]};this[f]("start",null,a)}var a=new c;b.jstiming={Timer:c,load:a};if(b.performance&&b.performance.timing){var d=b.performance.timing,a=b[e].load,g=d.navigationStart,d=d.responseStart;0=g&&(a[f]("_wtsrt",void 0,g),a[f]("wtsrt_","_wtsrt",d))}try{a=null,b.chrome&&b.chrome.csi&&(a=Math.floor(b.chrome.csi().pageT)),null==a&&b.gtbExternal&&(a=b.gtbExternal.pageT()),null==a&&b.external&& (a=b.external.pageT),a&&(b[e].pt=a)}catch(j){}})();b.tickAboveFold=function(c){var a=0;if(c.offsetParent){do a+=c.offsetTop;while(c=c.offsetParent)}c=a;750>=c&&b[e].load[f]("aft")};var h=!1;function i(){h||(h=!0,b[e].load[f]("firstScrollTime"))}b.addEventListener?b.addEventListener("scroll",i,!1):b.attachEvent("onscroll",i); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

26.6.03

Þetta á víst að vera matarblogg með uppskriftum en það er orðið ansi langt síðan ég hef komið með uppskrift. Nú er ég að hugsa um að bæta svolítið úr því á næstunni og hér er fyrst af öllu ein sem ég lofaði fyrir nokkru, eftir að ég kom með svona köku í vinnuna. Þessi var í 17. júní-kaffinu mínu, enda var rigning, og þeir sem til þekkja vita að þegar rignir mikið grípur mig illviðráðanleg löngun til að baka eitthvað sem inniheldur banana. Veit ekki af hverju.

Í þetta skipti átti ég reyndar tæplega nógu þroskaða banana, ekki heldur í frysti. Bananar sem notaðir eru í bakkelsi eiga í flestum tilvikum að vera ofþroskaðir, helst svartir að utan, og ég geymi þá stundum sérstaklega til að nota í kökur (aumingja móðir mín fór einu sinni að taka eitthvað til í eldhúsinu hjá mér, rakst á kolsvartan banana og henti honum, en ég varð mjög svekkt því ég hafði ætlað að baka bananahnetusmákökur eftir míkrónesískri uppskrift sem ég á). En ef maður á svarta banana og nennir ekki að baka er líka hægt að frysta þá og nota seinna. Annaðhvort í bakkelsi eða sjeik, til dæmis.

Þessi uppskrift er ekki frá Míkrónesíu, heldur frá eynni Nevis í Karíbahafi, tekin úr annarri af tveimur matreiðslubókum sem ég á þaðan. Reyndar sker hún sig á engan hátt frá öðrum karíbskum bananabrauðsuppskriftum, bananabrauð er afar algengt a.m.k. á öllum enskumælandi eyjum þarna. Þetta er ágætis uppskrift og mjög einföld - reyndar má gera hana enn einfaldari með því að mauka bananana í matvinnsluvél, setja svo smjör, sykur, egg og vanillu út í og hræra vel saman, og blanda að lokum hveiti, lyftidufti og hnetum saman við. Ég tíndi stærri hnetubitana frá og setti þá ofan á en hrærði mylsnunni og minni bitunum saman við deigið.

Bananabrauð frá Nevis

3 meðalstórir bananar, mjög vel þroskaðir
125 g smjör, lint
225 g sykur
2 egg
1/2 tsk vanilludropar
225 g hveiti
1 tsk lyftiduft
75 g heslihnetur, grófsaxaðar


Ofninn hitaður í 170°C. Bananarnir stappaðir eða maukaðir í matvinnsluvél. Smjör og sykur hrært saman, síðan er eggjunum bætt út í, öðru í senn, ásamt vanillunni. Hveiti og lyftidufti blandað saman og því hrært saman við deigið ásamt bananamaukinu. Að síðustu er helmingnum af hnetunum hrært saman við. Sett í meðalstórt, vel smurt jólakökuform og afganginum af hnetunum stráð yfir. Sett í ofninn og bakað í u.þ.b. 1 klst, eða þar til prjónn sem stungið er í kökuna miðja kemur hreinn út. Látin kólna í forminu smástund og síðan hvolft á grind.

|