Nýja æðislega flotta framúrstefnulega rándýra uppþvottavélin mín er:
ný (og spegilgljáandi)
æðislega flott (það var ást við fyrstu sýn frá minni hálfu)
framúrstefnuleg (hún spilar meira að segja lag í hvert skipti sem hún er opnuð)
rándýr (eee ... já)
og hún virkar. Allavega helmingurinn af henni, ég er ekki búin að prófa nema aðra skúffuna. Ég sat í gærkvöldi og bölvaði því (næstum) að hafa látið efnafræðistúdentinn þvo upp daginn áður því það var svo lítið uppvask til að það tók því ekki að setja í báðar.
Ég gat meiraðsegja tengt hana sjálf, enda hafði PíKó gengið svo vel frá tengingunum fyrir gömlu vélina. En þar sem ég á ekki vaturpassa og fann ekki skiptilykilinn minn þurfti ég aðstoð við að koma vélinni fyrir í innréttingunni og stóribróðir brást vel við og reddaði málunum fyrir mig.