Þetta var ég að lesa á mbl.is áðan:
,,lögreglan í Reykjavík hefur lokið rannsókn á máli tveggja manna, Þjóðverja og Breta, sem eru sakaðir um að hafa smyglað 3-4 kílóum af hassi til landsins.
Þeir voru handteknir á Keflavíkurflugvelli um síðustu mánaðamót eftir að í farangri annars þeirra fundust fjórar niðursuðudósir sem virtust geyma matvöru en annað kom á daginn.
Af merkingunum að dæma var innihald dósanna ýmist ólífur, linsubaunir eða pottréttir. Ekkert í útliti dósanna benti til annars en að þær kæmu beinustu leið frá verksmiðjunum og það gutlaði í þeim þegar þær voru hristar. Þegar dósirnar voru opnaðar kom hins vegar í ljós talsvert magn af hassi sem hafði verið haganlega fyrir komið. Búið var um hassið í frauðplasti svo það gengi ekki til í dósunum og þær síðan fylltar með vatni."
Þetta voru menn nú að gera í Kjötiðnaðarstöð KEA fyrir þrjátíu árum, þegar strákarnir þar fóru í Húsafell um verslunarmannahelgina, allir vel nestaðir. Nema þá var vodka í saxbautadósunum, gin í vínarpylsudósunum og svo framvegis ...