Mér finnst líka ,,matgæðingur" forljótt orð. Álíka hallærislegt og ,,foodie" á ensku. Ég bið alltaf um að vera kynnt sem húsmóðir en einhvern veginn er eins og sumum finnist það ekki nógu fínt. Hmpf. Ég sætti mig aftur á móti alveg við að vera kölluð matargúrú eins og börnin mín gera stundum. Ekki síst eftir að ég sá myndina The Guru.