Ég er að deyja úr hungri af því að ég gleymdi veskinu mínu heima og er ekki með neina smápeninga á mér og efnafræðistúdentinn er svo lengi að dratthalast hingað með veskið og ég kemst ekki inn í eldhúsið hér á staðnum til að gá hvort til er eitthvað ætilegt af því að það þarf að ganga í gegnum stúdíóið og það er harðlokað sem þýðir að það er örugglega verið að taka einhverjar berrassamyndir þar og ... Urr.