Æi, ég hef verið eitthvað utan við mig vegna syfju í gær, ég ætlaði að hafa krækju á greinina í Guardian sem ég var að tala um. Mér fannst nefnilega ýmislegt áhugavert í þessari umfjöllun.
Annars ekkert skrítið þótt ég væri syfjuð, fór ekki að sofa fyrr en um fimmleytið og var svo vakin klukkan sjö af tveimur kjökrandi börnum - annað var í fýlu af því að það hafði vaknað upp í ókunnugu rúmi og allir steinsofandi, hitt hafði verið bitið í kinnina af litla bróður sínum, sem líklega hefur verið búin að reyna árangurslaust að vekja okkur með öðrum hætti ...