Efnafræðistúdentinn situr hér og er að útskýra fyrir mér af hverju ammoníak er eitt af uppáhalds efnunum hans. Einmitt.
Eða hann var að því þar til hann heyrði dagskrárkynningu á Skjá 1: ,,Núna hefur Trista fengið nægar forsendur til að velja sér lífsförunaut." Þá sprakk hann og hló hann svo mikið að hann datt af borðshorninu kylliflatur á gólfið. Liggur þar og baðar út öllum öngum. Ég skil hann vel.