Ég hefði greinilega ekki átt að fara í vinnuna í dag, ég er langt frá því að vera orðin góð eftir veikindin. Svo vann ég frameftir til að vera örugglega búin að klára allt í blaðið (sem á að fara í prentun á mánudag) og kom heim svo úrvinda að núna ligg ég afvelta í sófanum með rauðvínsglas sem efnafræðistúdentinn færði mér af því að hann er góður sonur og horfi á Arnold Schwarzenegger. Er hægt að komast lengra niður á föstudagskvöldi?
Já, kannski. Ég gæti verið að horfa á Adult Channel. Og þó. Dagskráin þar er sennilega ekki byrjuð.