(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

17.3.03

Ég veit ekki alveg hvað er í gangi, ég er búin að fá fjögur tilboð um kostakaup á Viagra bara síðan ég mætti í vinnuna fyrir rúmum hálftíma. Það er til viðbótar öllu því sem hafði komið um helgina og ég var þegar búin að eyða. Og tilkynningu frá einhverjum manni í Tógó um að hann vilji gera mig að milljónamæringi (það er nýtt land í safnið, ég held að ég hafi aldrei fengið neitt frá Tógó áður - allavega ekki sem hefur komist í gegnum spam-filterana). Og póst frá einhverjum sem segist þekkja öll mín leyndarmál. Og tvö bréf frá einhverjum sem ætla að taka að sér að losa mig við öll mín fjárhagsvandamál (ég þarf nú varla á því að halda þegar ég verð búin að fá milljónirnar frá Tógó).

Þetta er nú ekki það sem mig vantar á mánudagsmorgni þegar ég er að drepast úr hausverk og það án lögmætrar ástæðu.

|