Ég var á samkomu í Hveragerði fyrr í kvöld þar sem Magnús hvaðhannnúheitir, fréttaritari Sjónvarpsins á Suðurlandi, mætti í bleikri gegnsærri híalínsskikkju. Sagðist vera Súperman en minnti meira á ofvaxinn garðálf. En svona er það þegar maður lætur þvæla sér á samkomur í Hveragerði, maður þarf að vera viðbúinn hverju sem er.