Ég veit ekki alveg af hverju nafnið mitt er allt í einu horfið út af blogginu. En ætla að gera ráð fyrir að það sé tímabundið vandamál, Blogger-tengd vandamál hafa yfirleitt reynst vera það hingað til.
Mig langar í salat með kjúklingabaunum, grillaðri papriku og kirsiberjatómötum, chorizo og spínati í hádegismatinn. En mundi alveg sætta mig við samloku með túnfisksalati. Ég er alltsvo svöng.
En mig langar ekkert tiltakanlega í kjúkling. Ég er nefnilega að fara að elda fjóra kjúklingarétti á eftir. Og baka tertur. Ekki þó brúðkaupstertur.
You should have my problems.