Úrslitaviðureign smekkkeppninnar hafin
Ætli ég loki ekki fyrir atkvæðagreiðsluna núna, úrslitin eru held ég nokkuð ljós þótt það sé bara í humar/skötusels-kategoríunni sem hægt er að tala um burst – skötuselurinn hefur ekkert í humarinn að gera, það er alveg ljóst. Þannig að niðurstaðan er:
Lamb 22
Naut 9
Önd 20
Gæs 10
Humar 27
Skötuselur 2
Lúða 12
Silungur 19
Hér er svosem ekkert sem kemur á óvart. En þá er það lokaviðureignin: Hvaða kjötmeti og fiskmeti er best? Er það:
Lamb eða önd?
Humar eða silungur?
(Og nú er ég orðin svöng, eins gott ég á gríska jógúrt og villiblómahunang í ísskápnum.)