Ójafn leikur lambs og svíns
Ókei, ókei, ég vissi svosem að það væri ósanngjarnt að etja saman lambi og svíni - en hvers vegna er þá svínakjöt aðalhátíðamatur Íslendinga en ekki lambakjöt??? Kannski er ósanngjarnt gagnvart hvaða kjöti sem er að tefla því gegn lambinu, kemur í ljós í seinni umferðum.
Silungur hefur líka greinilega vinninginn á lax en í hinum flokkunum er munurinn minni og allt getur gerst - þessi lota stendur jú til fyrramáls. En akkúrat núna er staðan þessi:
Lamb 22
Svín 1
Hrefna 8
Svartfugl 15
Lax 4
Silungur 17
Lúða 12
Saltfiskur 8