Nú vandast valið: 3. umferð
Þá eru úrslitin komin í seinni lotu 2. umferðar; þar voru tvær tvísýnar viðureignir en öndin og skötuselurinn höfðu betur á lokasprettinum. Það var auðvitað aldrei nein spurning um lambið en rauðsprettan stóð ágætlega í lúðunni framan af (það gerir smörrebröðið).
Lamb 27
Folald 6
Kjúklingur 15
Önd 18
Rauðspretta 10
Lúða 20
Túnfiskur 14
Skötuselur 18
Þannig að það eru lamb, önd, lúða og skötuselur sem fara áfram og nú vandast valið hjá mörgum:
Lamb og naut: Ætli nautið sé eina kjötið sem á séns í lambið? Eða verður þessi viðureign líka ójöfn?
Gæs gegn önd: Ég er með í huga unga villigæs gegn pattaralegri aliönd – en það má líka ganga út frá feitri aligæs og góðri stokkönd mín vegna ...
Humar/skötuselur: Sagan segir að sumt af þeim humri sem seldur var á enskum veitingahúsum fyrr á tíð hafi í rauninni verið skötuselur í dulbúningi. Hvor er betri?
Silungur gegn lúðu: Ólíkir fiskar en hvor hefur vinninginn?
Kjósið nú – þetta er næstsíðasta umferð, svo er bara úrslitaviðureignin eftir, um kjöt annars vegar og fiskmeti hins vegar.